Landsskipulagsstefna 2024-2038

Þingsályktunum landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.

Þingsályktun um landsskipulagsstefnu 2024-2038 var samþykkt á Alþingi í maí 2024. Landsskipulagsstefna felur í sér samræmda stefnu ríkisins í skipulagsmálum fyrir landið í heild og tekur til landsins alls og haf- og strandsvæða. Stefnan leysir af hólmi Landsskipulagsstefnu 2015-2026 sem tók gildi árið 2016, þá fyrsta heildstæða stefna um skipulagsmál á landsvísu.

Í landsskipulagsstefnu 2024-2038 eru eftirfarandi þrjú markmið lögð til grundvallar, sem öll byggja á sjálfbærri þróun. Framtíðarsýn stefnunnar byggir á leiðarljósum eldri stefnu um að skipulag byggðar og landnotkunar stuðli að sjálfbærri þróun, sé sveigjanlegt og stuðli að viðnámsþrótti gagnvart samfélags- og umhverfisbreytingum og jafnframt að lífsgæðum fólks og styðji samkeppnishæfni landsins alls og einstakra landshluta.

  • A. Markmið um vernd umhverfis og náttúru snýr að heilnæmi umhverfis og verndun og varðveislu víðerna, landslags, náttúru og líffræðilegrar fjölbreytni. Þar kemur fram áhersla á kolefnishlutleysi sem leiðarljós í skipulagi og samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá landnotkun.
  • B. Markmið um velsæld samfélags snýr að almennri velsæld í samfélagi og gæðum í hinu byggða umhverfi með jafnvægi í nýtingu lands í þéttbýli og dreifbýli þar sem vöxtur samfélaga gengur ekki um of á náttúrulegt umhverfi. Þar kemur fram áhersla á loftslagsaðlögun sem leiðarljós í skipulagi og seiglu samfélaga gagnvart afleiðingum loftslagsbreytinga.
  • C. Markmið um samkeppnishæft atvinnulíf snýr að samkeppnishæfni samfélags og eflingu atvinnulífs, hagkvæmri uppbyggingu innviða og sjálfbærri nýtingu auðlinda þar sem vexti er beint á tiltekin svæði. Þar kemur fram áhersla á kolefnishlutleysi sem leiðarljós í skipulagi með aukinni bindingu gróðurhúsalofttegunda.

Undir hverju markmiði eru settar fram áherslur ásamt tilmælum um framfylgd þeirra fyrir skipulagsgerð á miðhálendi (M), í dreifbýli (D), í þéttbýli (Þ) og á haf- og strandsvæðum (H). Aðgerðaáætlun sem fylgir stefnunni, felur jafnframt í sér tiltekin verkefni til að hrinda markmiðum hennar í framkvæmd.