Landsskipulagsstefna og skipulagsgerð sveitarfélaga
Kynningarfundir um auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026.
Skipulagsstofnun kynnir auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026, en haldnir verða opnir fundir á eftirtöldum stöðum:
- Ísafirði 14. janúar kl. 12.30-14.30 í Háskólasetrinu
- Akureyri 21. janúar kl. 15-17 á Hótel Kea
- Blönduósi 22. janúar kl. 13-15 í Eyvindarstofu
- Borgarnesi 26. janúar kl. 14-16 í Landnámssetrinu
- Egilsstöðum 27. janúar kl. 15-17 á Hótel Héraði
- Selfossi 28. janúar kl 15-17 á Hótel Selfossi
- Reykjavík 29. janúar kl. 15-17 á Nauthóli, en fundurinn verður einnig sendur út í gegnum heimasíðu Skipulagsstofnunar.
Á fundinum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags.
Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014, má nálgast hér í síðunni. Frestur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015, sjá nánar í auglýsingu.
Auglýst tillaga að landsskipulagsstefnu:
-
Landsskipulagsstefna 2013-2024 - Tillaga til auglýsingar (pdf útgáfa, 19. desember 2014)
-
Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir (pdf útgáfa, ágúst 2014)