Landsskipulagsstefna 2015-2026 - samráðsvettvangur
Þátttaka í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015 – 2026
Skipulagsstofnun býður hér með þeim sem hafa áhuga á eða eiga hagsmuna að gæta að aka þátt í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015 - 2026.
Skipulagsstofnun hefur í samræmi við reglugerð um landsskipulagsstefnu nr. 1001/2011 stofnað sérstakan samráðsvettvang vegna mótunar landsskipulagsstefnu. Stofnuninni er falið að gera tillögu að landsskipulagsstefnu sem fjalli um eftirtalda málaflokka:
- Skipulag á miðhálendi Íslands
- Búsetumynstur – dreifing byggðar
- Skipulag á haf- og strandsvæðum
- Skipulag landnotkunar í dreifbýli
Skipulagsstofnun býður hér með þeim sem hafa áhuga á eða eiga hagsmuna að gæta að taka þátt í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015 - 2026.
Tilkynningar um þátttöku á samráðsvettvangi sendist til Skipulagsstofnunar Laugavegi 166, 150 Reykjavík eða á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is fyrir 17. febrúar næstkomandi. Fram komi nafn og netfang þátttakenda.
Nánar um samráðsvettvang
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur falið Skipulagsstofnun að vinna tillögu að landsskipulagsstefnu í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. bréf ráðuneytisins þar um. Málaflokkar sem fjallað var um í fyrstu tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu, sem lögð var fram á vorþingi 2013 en náði ekki afgreiðslu verða teknir fyrir að nýju. Það er skipulag á miðhálendi Íslands, búsetumynstur og dreifing byggðar og skipulag á haf- og strandsvæðum. Auk þess verður fjallað um nýtt viðfangsefni, skipulag landnotkunar í dreifbýli. Í vinnu að nýrri tillögu að landsskipulagstefnu verður byggt á gögnum og sjónarmiðum sem fram komu við vinnslu fyrri tillögu, sem og uppfærðum forsendum.
Áætlað er að Skipulagsstofnun skili tillögu sinni til umhverfis- og auðlindaráðuneytis í desember 2014 og að tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026 verði lögð fram á vorþingi 2015.
Tillaga að landsskipulagsstefnu 2015-2026 verður mótuð í virku samráði við sveitarfélög og samtök þeirra, opinberar stofnanir og hagsmunasamtök, m.a. í gegnum samráðsvettvang og með formlegu auglýsingaferli. Skipulagsstofnun mun leggja fram hugmyndir til kynningar og umræðu og leita eftir ábendingum og tillögum. Fyrirhugað er að starf samráðsvettvangsins muni fara fram á fundum sem Skipulagsstofnun boðar til, sem og á netinu. Auk þessa mun sérstök ráðgjafarnefnd, skipuð fulltrúum ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga, verða Skipulagsstofnun til ráðgjafar um vinnslu tillögunnar.
Helstu tímasetningar í ferli landsskipulagsstefnu 2015-2026 eru samkvæmt áætlun:
- Lýsing landsskipulagsstefnu kynnt opinberlega í febrúar 2014 og samhliða verður leitað eftir áherslum frá samráðsvettvangi.
- Forsenduskýrsla landsskipulagsstefnu og samantekt á greiningu sviðsmynda ásamt umhverfismati kynnt í maí 2014.
- Tillaga að landsskipulagsstefnu auglýst í október og nóvember 2014.
- Tillaga til þingsályktunar lögð fram á Alþingi á vorþingi 2015.
Kostnaður vegna þátttöku í samráðsvettvanginum greiðist af þátttakendum. Nánari upplýsingar veitir Einar í síma 595 4100 eða í gegnum netfangið einar@skipulagsstofnun.is.