Lýsing Landsskipulagsstefnu 2015-2026
Skipulagsstofnun auglýsir hér með lýsingu fyrir gerð landsskipulagsstefnu 2015-2026 sbr. reglugerð nr. 1001/2011. Í lýsingunni er gerð grein fyrir hvernig fyrirhugað er að standa að mótun landsskipulagsstefnu.
Hægt er að nálgast lýsinguna á vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsstofnun.is, hér á vef landsskipulagsstefnu www.landsskipulag.is og hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, 105 Reykjavík.
Skipulagsstofnun auglýsir hér með lýsingu fyrir gerð landsskipulagsstefnu 2015-2026 sbr. reglugerð nr. 1001/2011. Í lýsingunni er gerð grein fyrir hvernig fyrirhugað er að standa að mótun landsskipulagsstefnu.
Hægt er að nálgast lýsinguna á vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsstofnun.is, hér á vef landsskipulagsstefnu og hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, 105 Reykjavík.
Allir sem þess óska geta komið á framfæri ábendingum og athugasemdum við lýsinguna og skulu þær berast Skipulagsstofnun í síðasta lagi 12. mars 2014 með bréfi, tölvupósti á landsskipulag@skipulagsstofnun.is eða á www.landsskipulag.is.
Lýsingin verður jafnframt kynnt á kynningar– og samráðsfundum á eftirtöldum stöðum en dagskrá auglýst síðar:
- Reykjavík 25. febrúar kl. 15.00 - 17.30, Iðnó, Vonarstræti 3
- Borgarnesi 27. febrúar kl. 14.00 -16.00, Bjarnarbraut 8
- Selfossi 28. febrúar kl. 15.00 - 17.00, Hótel Selfossi, Kirkjuvegi 2
- Egilsstöðum 3. mars kl. 15.00 - 17.00, Hótel Héraði, Miðvangi 1-7
- Ísafirði 4. mars kl. 15.00 - 17.00, Háskólasetri Vestfjarða, Suðurg. 12
- Akureyri 5. mars kl. 15.00 - 17.00, Hótel KEA, Hafnarstræti 87-89
Lýsing Landsskipulagsstefnu 2015-2026
Lýsing Landsskipulagsstefnu 2015-2026 PDF útgáfa